Skoða bók
Stjörnur yfir Tókýó
06:14 klst.
2015
Tsukiko er einhleyp skrifstofukona. Hún fer gjarna á veitingastaði eftir vinnu, og dag einn hittir hún fyrir tilviljun gamlan bókmenntafræðikennara sinn úr gagnfræðaskóla. Tilviljanirnar elta þau á röndum og vinátta þeirra þróast - þrátt fyrir áratuga aldursmun. Hiromi Kawakami er fædd í Japan árið 1958. Hún hlaut virt verðlaun í heimalandi sínu fyrir þessa sögu, sem er uppistaðan í vinsælum þarlendum sjónvarpsþáttum. Bókin var einnig tilnefnd til Man Asian-verðlaunanna og Independent Foreign Fiction Prize.