Skoða bók
Þýsk sálumessa
12:21 klst.
2023
Bernie Gunther, fyrrum einkaspæjari, lögreglumaður og uppgjafarhermaður, dregur fram lífið við eymdaraðstæður í rústum höfuðborgar Þýskalands eftir seinni heimsstyrjöld. Borginni er skipt upp í hernámssvæði og Bernie þarf að eiga samskipti við herstjórnir af ýmsu þjóðerni, þar sem Rússarnir eru varasamastir, en Bernie kann hrafl í rússnesku eftir veru sína á austurvígstöðvunum og getur bjargað sér. Bernie tekur að sér rannsókn máls, en óheppilegt mannslát gerir honum óvært í borginni, eiginkonan reynist ótrú og honum býðst óvænt verkefni suður í Vínarborg. Allt verður þetta til þess að hann rær á ný mið. En í Vín leynast engu að síður hættur við hvert fótmál; fláráðir herforingjar, laumunasistar í felum og huggulegt jafnt sem hættulegt kvenfólk. Og í bígerð í bakgrunninum er undirbúningur á töku hinnar frægu kvikmyndar, Þriðji maðurinn...
Bernie Gunther (skálduð persóna) Breskar bókmenntir Fimmti áratugurinn Glæpasögur Skoskar bókmenntir Skáldsögur Spennusögur Þýskaland Þýðingar úr ensku