Skoða bók
Skógarhögg: Geðshræring
07:13 klst.
2025
Klukkan nálgast miðnætti í íbúð Auersbergerhjónanna. Húsráðendur hafa boðið menningarelítu Vínar til listræns kvöldverðar og von er á heiðursgestinum, leikara við hið þekkta Burgleikhús, hvað úr hverju. Í rökkvuðu skoti situr maður í vængjastól, fylgist með samkundunni og minnist gamallar vinkonu sem borin var til grafar fyrr um daginn. Hann á vart eftir að mæla orð frá vörum allt kvöldið en í huganum fer hann með hamslausa einræðu um tilgerð og tækifærismennsku gesta og gestgjafa, fólks sem hann hafði sagt skilið við tuttugu árum áður - en getur þó ekki almennilega slitið sig frá. Skógarhögg: Geðshræring olli ólgu í menningarlífi Vínar þegar bókin kom út árið 1984 og var fjarlægð tímabundið úr verslunum vegna ásakana um ærumeiðingar. Þetta var þó ekki í eina skiptið sem Thomas Bernhard reitti landsmenn sína til reiði, enda hafði hann einstakt lag á að afhjúpa austurríska þjóð og sögu hennar í verkum sínum. Skógarhögg ber höfundinum skýrt vitni í miskunnarlausri gagnrýni, músíkölskum stíl, bölsýni og sótsvörtum húmor. Hjálmar Sveinsson íslenskaði og ritaði eftirmála.