Skoða bók

Millileikur

Rooney, Sally, 1991-  

Bjarni Jónsson  

Birta Ösp Rósinberg Harðardóttir  

16:23 klst.  

2025  

Tveir bræður, þrjár ástkonur, sorg, átök og uppgjör: Millileikur er einstaklega áhrifamikil saga um ást, missi og órofa tilfinningabönd eftir hina írsku Sally Rooney, sem hefur vakið heimsathygli fyrir skáldsögur sínar. Pétur er ríflega þrítugur lögmaður og lifir erilsömu lífi í hringiðu borgarinnar. Hann skemmtir sér grimmt og gistir oft hjá Naomi, sem er ung og villt, en er líka í nánu sambandi við Sylvíu, fyrrverandi unnustu sína sem hann getur ekki hætt að elska. Ívan er tíu árum yngri, var áður upprennandi skáksnillingur en hefur staðnað og líf hans er stefnulaust. Hann er feiminn einfari en þegar hann hittir Margréti, konu á fertugsaldri með erfitt hjónaband að baki, bresta allar varnir og milli þeirra kviknar eldheit ást. Faðir þessara ólíku bræðra er nýdáinn og sorgin ristir inn í kviku; báðir eru næmir og viðkvæmir, taugarnar þandar. Ástandið leiðir til óbærilegrar spennu, samskiptin eru erfið og hvor um sig þarf að gera upp líf sitt og langanir.  

Skáldsögur Írskar bókmenntir Þýðingar úr ensku