Skoða bók
Ferðabíó herra Saitos
15:17 klst.
2025
"Ég var getin á dansgólfi í Buenos Aires árið 1927". Þannig hefst saga Litu sem fæðist og elst upp í nunnuklaustri ásamt kornungri móður sinni sem hefur lítinn áhuga á barnauppeldi en elskar tangó og fallega skó. Líf mæðgnanna tekur óvænta stefnu þegar þær þurfa að flýja heimkynni sín og enda óvænt á afskekktri eyju undan ströndum Kanada þar sem þær fá inni á sjómannaheimilinu Betlehem. Smám saman kynnast þær samfélagi eyjarinnar og þar eignast Lita vinkonu í fyrsta skipti, hina heyrnarlausu Oonu McGregor. En þegar herra Saito mætir til eyjarinnar með ferðabíóið sitt opnast nýr ævintýraheimur fyrir Litu og ekkert verður eins og áður.